|
|
|
|||||
|
|
|
Á hverju ári halda íbúar Drangsness Bryggjuhátíð, sem er hin besta skemmtun. Hún hefst jafnan með dorgveiðikeppni yngstu kynslóðarinnar um morguninn. Mörgum finnst sjávarréttasmakkið á frystihúsplaninu vera hápunktur hátíðarhaldanna, en þar standa grillmeistarar hreppsins og grilla grásleppur, saltfisk, krabba og önnur sjávarskrímsli handa gestum. Mynda- og sögusýningar eru jafnan í skólahúsinu og Bryggjuhátíðin endar með varðeldi við samkomuhúsið og dansleik fram á rauða nótt.
Drangsnes er eina þéttbýlið í Kaldrananeshreppi. Þar var byggð og tekin í notkun árið 2005 útisundlaug, heitir pottar, buslulaug og gufubað. Gistingu er hægt að fá á tveimur stöðum á Drangsnesi; í glæsilegri íbúð hjá Dóra og Sunnu og einnig í gistiheimilinu Malarhorni, en þar hefur verið byggð upp mikil ferðaþjónusta undanfarin ár. Kaupfélag Steingrímsfjarðar rekur verslun í þorpinu og skammt frá henni er félagsheimilið Baldur. Þar er ágætt tjaldsvæði með góðri snyrtiaðstöðu. Ásbjörn Magnússon sér um að sigla með fólk út í Grímsey á bátnum Sundhana, en eyjan er skammt frá landi við Drangsnes.
©
maí 2003
Jón Jónsson |
|
|
Hefur þú heimsótt Strandir nýlega? |
Vefur:
SÖGUSMIÐJAN |
||