|
|
|
|||||
|
|||||||
|
Hólmavík
er líflegt og skemmtilegt
tæplega 400 manna kauptún við Steingrímsfjörð á Ströndum, í aðeins 270
km fjarlægð frá Reykjavík. Íbúarnir í sveitunum í kring um Hólmavík
lifa á sauðfjárrækt, en í þorpinu snýst atvinnan að miklu leyti
um sjávarútveg og þjónustu. Oft er sagt að á Ströndum búi
kraftmikið fólk sem sé í góðum tengslum við náttúruna og eru það
orð að sönnu.
Á Hólmavík er margt að sjá og skoða. Nýleg 25 metra sundlaug, náttúrufegurð, fjölbreytt menningar- og mannlíf, golfvöllur, mótorcrossbraut, skemmtilegar gönguleiðir, handverk heimamanna, frábær veitingastaður og bar, skemmtilegar sýningar, skjól- og rúmgott tjaldsvæði eru meðal þess sem er í boði fyrir ferðamenn sem leggja leið sína til Hólmavíkur. Hólmavík
er paradís
fyrir unnendur fallegrar náttúru. Þorpið stendur við sjóinn undir
Kálfanesborgunum sem halda því undir sínum verndarvæng. Um
Borgirnar er hægt að ganga eftir göngustíg sem hefur verið mjög
vinsæll síðustu ár og var lagaður mikið árið 2009.
Göngugarpar geta skráð nöfn sín í gestabók
sem er staðsett á hæsta hjalla leiðarinnar.
Það er margt sem heillar á Hólmavík. Sumarið 2004 var tekin í notkun glæsileg 25 metra sundlaug með allr aðstöðu eins og hún gerist best. Auk sundlaugarinnar, sem er rétt hjá tjaldsvæðinu og Upplýsingamiðstöðinni, eru í boði tveir heitir pottar fyrir pottormana og buslulaug fyrir börn á öllum aldri. Elsta byggingin á Hólmavík
er Riis-hús.
Það var byggt árið 1897 af dönskum kaupmanni, Richard P. Riis. Þar
er veitingastaðurinn og barinn Café Riis staðsettur, en hann er þægilegur
staður í hjarta bæjarins. Húsið er glæsilega innréttað og býður
upp á matseðil sem enginn ætti að verða svikinn af. Þá er oft
gaman að kíkja þangað um helgar, fá sér í könnu og spjalla við
heimamenn eða skoða myndasýningu sem sýnir mannlíf á Hólmavík. Tveir minnisvarðar
eru á Hólmavík, inni í þorpinu er minnismerki um Stefán frá Hvítadal
á fæðingarstað hans, en Stefán var fyrsti innfæddi Hólmvíkingurinn.
Þá hefur Hermanni Jónassyni, fyrrverandi þingmanni Strandamanna,
verið reistur minnisvarði í Hermannslundi í landi Skeljavíkur,
skammt utan Hólmavíkur.
Það orð hefur lengi farið af Strandamönnum að þeir kunni sitthvað meira fyrir sér í göldrum en aðrir. Á Hólmavík er hægt að heimsækja Galdrasýningu sem er kynngimögnuð ferð um dularheima galdra og kukls. Á sýningunni er fjallað á faglegan hátt um galdramál 17. aldar á Íslandi og þjóðtrú Íslendinga. Á sama stað er að finna kaffihúsið Kaffi Galdur þar sem má smakka kynngimagnaðar kökur og kruðerí. Sauðfjársetur
á Ströndum er staðsett í félagsheimilinu
Sævangi, 12 km sunnan við Hólmavík.
Þar getur fólk fræðst um sögu íslensku sauðkindarinnar á
skemmtilegri og lifandi sýningu, auk þess sem þar er hægt að fá sér
kaffi og heimilislegt íslenskt meðlæti í notalegri kaffistofu sem ber
heitið Kaffi Kind. Í Sævangi
er einnig rekin handverksbúð og á sumrin eru þar heimalningar sem börnin
fá að taka þátt í að gefa.
©
júní 2003 (uppfært 2009)
|
|||||||
|
Hefur þú heimsótt Strandir nýlega? |
Vefur:
SÖGUSMIÐJAN |
||