Upplýsingamiðstöðin á Hólmavík
Félagsheimilinu, 510 Hólmavík - sími: 451-3111 - info@holmavik.is
 

Upplýsingamiðstöðin

Ferðaþjónar á Ströndum

Greinar um Strandir

strandir.is

 
STRANDIR - NÆR EN ÞIG GRUNAR

Svæðið á austanverðum Vestfjörðum, frá Hrútafirði og alla leið norður að Hornströndum, nefna heimamenn Strandir og sjálfa kalla þeir sig Strandamenn. Á svæðinu búa um 700 manns, þar af um 380 í þorpinu Hólmavík, um 80 á Drangsnesi og rúmlega 30 á Borðeyri. Öll þessi þrjú þorp er skemmtilegt að heimsækja. Margvísleg ferðaþjónusta er á Hólmavík, t.d. veitingastaðurinn Café Riis sem er í elsta húsi þorpsins, og á hverju ári halda Drangsnesingar veglega Bryggjuhátíð sem er skemmtun fyrir alla fjölskylduna. 

Sérkenni Stranda

Víða á Ströndum liggur rekaviður í hrúgum í fjörunni, en hann berst með hafstraumum frá ströndum Síberíu. Rekadrumbarnir hafa ávallt verið ein helstu hlunnindi Strandamanna og hann ásamt mörgum öðrum undrum fjörunnar getur gert fjöruferð á Ströndum að ógleymanlegu ævintýri. 

Strandir eru mikið heimsóttar af göngu- og útivistarfólki enda eru þar óteljandi fallegar gönguleiðir við allra hæfi. Gönguleiðakort með lýsingu á nokkrum vel völdum leiðum er hægt að nálgast á helstu viðkomustöðum ferðamanna.

Þjóðtrú og galdrar

Í hugum fólks hafa Strandir gjarnan á sér dulúðugan blæ. Strandamenn voru taldir að búa yfir kunnáttu til að beisla náttúruöflin sér til hagsbóta og landslagið allt gerir ferðamönnum auðveldara að setja sig inn í heim þjóðsagna og trúa sem aldrei fyrr á tilvist drauga, álfa og trölla. Á Ströndum hefur verið sett upp Galdrasýning á Ströndum sem er staðsett á Hólmavík og síðan er Kotbýli kuklarans á Klúku í Bjarnarfirði. Sýningarstaði Galdrasýningarinnar heimsækja fjölmargir gestir á hverju ári. 

Norður í Árneshreppi

Margir af gestum Strandamanna heimsækja Árneshreppinn reglulega, enda er hann sannkölluð perla Strandasýslu, magnþrunginn staður þar sem náttúran og fólkið ná betur saman en víðast annars staðar. Í Trékyllisvík kíkja menn við handverkshúsinu Kört og heimsækja kirkjurnar í Árnesi. Þaðan er stutt í sund í Krossneslaug sem er sérstök upplifun og gönguferð á Reykaneshyrnu svíkur engan.

Saga síldarverksmiðjunnar í Djúpavík

Þeir sem bregða sér í Árneshrepp ættu að gefa sér góðan tíma til að stoppa og skoða sig um í Djúpavík, þar sem risavaxin aflögð síldarverksmiðja í ægifögru umhverfi hefur heillað margan manninn í gegnum tíðina.

Saga Djúpavíkur við Reykjarfjörð á Ströndum er ævintýraleg í meira lagi og nú gefst gestum færi á að kynnast henni töluvert nánar en verið hefur. Þann 7. júlí 2003, þegar nákvæmlega 68 ár voru liðin frá því að síldarverksmiðjan var fyrst gangsett, var opnuð sögusýning í einum sal verksmiðjunnar. Það eru hótelhaldararnir í Djúpavík, Eva Sigurbjörnsdóttir og Ásbjörn Þorgilsson, sem standa fyrir verkefninu.

Viltu vita meira?

Nánari upplýsingar um Strandir má finna á vefnum www.strandir.is og tengdum vefum.
Upplýsingamiðstöð ferðamála á Hólmavík sem yfir sumartímann er staðsett í félagsheimilinu
við tjaldsvæðið svarar einnig öllum fyrirspurnum greiðlega – jafnt á staðnum, í síma 451-3111
og í tölvupósti info@holmavik.is allt árið um kring. 

» júní 2003 (uppfært júní 2009)
Jón Jónsson og Arnar S. Jónsson

 

Hefur þú heimsótt Strandir nýlega?

Vefur: SÖGUSMIÐJAN
© 2003