|
|
|
|||||
|
|
|
Þann 17. júlí 2004 var tekin í notkun ný og glæsileg 25 metra útisundlaug á Hólmavík. Við sundlaugina eru einnig tveir heitir pottar og barnavaðlaug auk þess sem þar er að finna heitt og gott gufubað innandyra. Sundlaugin er lögleg keppnislaug og hefur verið vel sótt allt frá opnun hennar, jafnt af ferðamönnum sem heimamönnum.
Sundlaugin er staðsett rétt ofan við tjaldsvæðið og við hliðina á Upplýsingamiðstöðinni í anddyri félagsheimilisins. Bæði heimamenn og ferðafólk hafa lýst yfir mikilli ánægju með laugina, en sundlaug var í tugi ára fjarlægur draumur margra Hólmvíkinga. Auk sundlaugarinnar og þjónustubyggingar við hana var reist íþróttahús sem var tekið í notkun í desember 2004 og er mikið nýtt af heimafólki.
Opnunartími sundlaugarinnar sumarið 2009 er frá kl. 9:00-21:00 alla daga vikunnar. Símanúmer í móttöku sundlaugarinnar er 451-3560 og netfangið er sundlaug@holmavik.is. Fræðast má um aðrar sundlaugar á Ströndum með því að smella hér.
|
|
|
Skelltu þér í sund! |
Vefur:
SÖGUSMIÐJAN |
||