Leikfélag Hólmavíkur

Búningahorn

Sminkhorn

Ljósahorn

Hvíslarahorn


Aðalsíðan

Leikritasíðan

 

 

 
Á sama bekk ¤
1996 

Einþáttungurinn Á sama bekk var einn af þremur leikþáttum sem leiknir voru í Kaffileikhúsinu á Café Riis sumarið 1996. Þetta stutta leikrit eftir Sævar Sigurgeirsson er hrein snilld. Það fjallar um eldra fólk sem sest á sama bekk í almenningsgarði. Þau taka tal saman og fljótlega kemur ýmislegt sem engan hafði órað fyrir í ljós.

Leikskráin sem gerð var fyrir uppsetninguna vakti mikla athygli. Hún var mikið föndurverk, handskrifuð og varla stærri en meðalfluga.

- Okkur vantar myndir af þessum leikþætti -

Höfundur: 

Sævar Sigurgeirsson.

Sviðsmynd og leikstjórn:

Ýmsir sem áttu leið fram hjá bekknum.

Hvíslari, ljós og fleira slíkt:

Jón Jónsson og fleiri.

Persónur og leikendur:
  

Gömul kona

Ester Sigfúsdóttir

Gamall maður

Sigurður Atlason

Sýningar (3):

  • Hólmavík (Café Riis) - 8. ágúst 1996

  • Djúpavík - 10. ágúst 1996

  • Hólmavík (Café Riis) - 15. ágúst 1996

 

 

Spakmæli verksins: „Það getur nú munað um 4 mínútur á dánarbeði.“

 
Vefur
: SÖGUSMIÐJAN
© 2002