Leikfélag Hólmavíkur

Búningahorn

Sminkhorn

Ljósahorn

Hvíslarahorn

 
Leikfélagið

Nýjustu fréttir

Leiksýningar

Ferðalög

Glens og grín

Leikarar o.fl.

Upphafssíðan
 

Gestabók
Skrá á póstlista


 

 
Hvíslarinn

Hvíslarar eru hinar leyndu hetjur leikhúsanna. Sem betur fer er það nú ekki á mörgum leiksýningum sem hvíslarinn er í aðalhlutverki. En samt er hann yfirleitt nærri alveg ómissandi. Það er nefnilega kúnst að hvísla. Yfirleitt tekst að gabba einhvern kvenmanninn (af hverju ætli það sé?) til að taka að sér hlutverk hvíslarans, einhvern sem hefur áhuga á leiklistinni, félagsskapnum í leikfélaginu, nú eða kannski leikstjóranum. Þetta er samt auðvitað alveg jafn mikil vinna og viðvera fyrir þá og leikarana.

Leikfélag Hólmavíkur hefur haft marga góða hvíslara og líka afar stressaða eða yfirmáta afslappaða. Stressaður hvíslari flettir rennsveittur fram og aftur í handritinu og fer á taugum í hvert sinn sem einhver segir t.d. „Drullastu út, hundaskíturinn þinn!“ í staðinn fyrir: „Snáfið þér út, hundsspottið yðar!", eins og stendur í handritinu.

Hvíslari, ljósamaður og leikstjóri í Skjaldhömrum - Stebba, Jói og Attí

Í afslappaða flokkinn fellur tvímælalaust Ásdís Jónsdóttir sem hvíslaði (aldrei) í leikferðinni með leikritið Skjaldhamra sem sýnt var 1991. Einu sinni var komið að henni á sýningu þar sem hún steinsvaf í hvíslarastólnum. Í annað sinn uppgötvaðist að hún var búin að koma Vikunni haganlega fyrir inn í handritinu og var að lesa í henni í staðinn fyrir að fylgjast með.

Guðmundína A. Haraldsdóttir hvíslaði að leikurum í Markólfu án handrits. Hún ruglaðist alltaf í því svo hún ákvað að læra frekar allan textann og var góður hvíslari.

Reyndasti og að margra mati besti hvíslari Leikfélags Hólmavíkur er Hildur Björnsdóttir sem hvíslaði í fjölmörgum leikritum á tímabilinu 1990-95.

Hvíslarar þurfa að kunna ýmsar kúnstir og velja orð sín vandlega. Sérstaklega verða þeir að fylgja þeirri höfuðreglu að hvísla aldrei, hvað sem á dynur, heldur tala upphátt þegar þeir þurfa að koma skilaboðum á sviðið. Svo mega þeir heldur aldrei hvísla því sem stendur í svigunum.

Af hverju eru aldrei hvíslaranámskeið í Leiklistarskóla Bandalagsins???

 

Spakmæli síðunnar: „Pssst! (Hneigir sig, brosir og fer).“

 
Vefur
: SÖGUSMIÐJAN
© 2002