|
Leikfélag Hólmavíkur |
|
||
|
Leikfélag Hólmavíkur var stofnađ 3. maí 1981. Áđur hafđi ţó löngum veriđ leikiđ á Ströndum, undir merkjum ýmissa ólíkra félagasamtaka. Leikfélagiđ er ţátttakandi í Bandalagi íslenskra leikfélaga. Hafđu samband viđ Leikfélag Hólmavíkur međ ţví ađ smella hérna. Ţá fćr Salbjörg póstinn sinn. Núverandi stjórn félagsins skipa: Jóhanna
Ása Einarsdóttir, stórleikari
Fjölbreytt starfsemi Leikfélagiđ gerir margt annađ en ađ setja upp leikrit. Eitt af ţví er ađ standa fyrir námskeiđum. Reglulega eru leiklistarnámskeiđ í hérađinu. Svo eru líka haldin sérlega vel heppnuđ partí öđru hverju og stundum horfa menn saman á gamlar upptökur af leikritum eđa úr leikferđum. Svo hafa leikfélagar leikiđ í kvikmyndum, gert útvarpsţátt, haldiđ skemmtikvöld, stađiđ fyrir sprelli á hátíđisdögum, sungiđ, samiđ og dansađ. Möguleikarnir til ađ gera skemmtilega hluti í leikfélagi er vćgast sagt óendanlegir.
Okkur vantar fleira fólk!!! Hefur ţú áhuga á ađ stíga á sviđ eđa starfa viđ leiklistina? Ţá er um ađ gera ađ ganga til liđs viđ Leikfélagiđ. Margar hendur vinna létt verk og ađ mörgu er ađ huga öđru en leiknum sjálfum; leiktjöldum, búningum, lýsingu, leikskrám og skemmtunum. Leikfélög eru skemmtilegur félagsskapur sem gaman er ađ starfa međ. Ţađ er hverju leikfélagi lífsnauđsyn ađ sífellt mćti nýtt fólk međ nýjar hugmyndir til starfa.
Formannatal Leikfélags Hólmavíkur: Jóhanna
Ása Einarsdóttir 2005-
Friđrik Runólfsson (f. 26. júní 1922, d. 22. maí 1991) var gerđur ađ heiđursfélaga í Leikfélagi Hólmavíkur á 10 ára afmćli ţess. Hann var einn af máttarstólpum félagsins og lék í mörgum uppsetningum eftir ađ ţađ var stofnađ, auk fjölda hlutverka í alls kyns leikritum á Ströndum fyrir formlega stofnun Leikfélags Hólmavíkur. Ţađ var sama međ hvađa hlutverk Friggi fór, hvort hann lék prestinn, biskupinn, lćkninn eđa sýslumanninn. Allt var ţađ jafn vel gert. Ţó var mest um vert ađ njóta félagsskapar hans, ţví Friggi okkar var međ eindćmum jákvćđur og var međ í öllu sem gert var af lífi og sál. Leikfélagiđ á honum mikiđ ađ ţakka.
|
|||
|
Spakmćli dagsins: „Ţađ er svo gaman ađ leika.“ |
|
||