Leikfélag Hólmavíkur

Búningahorn

Sminkhorn

Ljósahorn

Hvíslarahorn


Aðalsíðan

Leikritasíðan

 
Djúpavíkurævintýrið ¤
1995/1997

Djúpavíkurævintýrið er leikgerð Sigurðar Atlasonar upp úr leikriti sem Vilborg Traustadóttir skrifaði og ber nafnið Eiðrofi. Leikritið er frekar átakanleg saga en jafnframt góð lýsing á lífinu í Djúpavík þegar síldarævintýrið stóð yfir og líðan fólksins þegar því lauk. Þetta leikrit er langvíðförlasta sýning leikfélagsins frá upphafi, enda var farið með það í hringferð um landið sem er gríðarlega eftirminnileg fyrir þau fjögur sem það gerðu.

Fyrsta uppsetning verksins var sýnd á Djúpavíkurhátíð 1995. Í þeirri útgáfu var Nanna María Elfarsdóttir í hlutverki Huggu/Guðrúnar og heilmikill söngflokkur undir stjórn Ásdísar Jónsdóttur fylgdi með og söng á milli atriða og eftir sýningu. Þessi útgáfa var líka sýnd þrisvar sinnum í Riis-húsi sem síðar varð Café Riis.

Í október 1995 var síðan ákveðið að leggjast í það stórvirki að fara hringferð um landið með Djúpavíkurævintýrið. Árdís B. Jónsdóttir tók að sér hluterk Nönnu Maríu sem var farin í skóla og frumsýnt var 7. október á formannafundi BÍL sem var haldin á Hólmavík. Leikferðin sögulega tók stóð yfir í rúmar tvær vikur og á þeim tíma var sýnt 13 sinnum, víðast hvar við góða aðsókn. Sönghópnum var skipt út fyrir tæknimann sem spilaði lög af bandi og varpaði myndum af Djúpavík á vegg. Mikið tækniundur.

Árið 1997 var Djúpavíkurævintýrið síðan æft upp með nýrri leikkonu, Sunnevu Árnadóttur, og sýnt í Kaffileikhúsi á Café Riis og í Laugarhóli í Bjarnarfirði.

 

djupa-2.jpg (38776 bytes)

djupa-12.jpg (37071 bytes)

djupa-7.jpg (30174 bytes)

  

djupa-6.jpg (21614 bytes)

djupa-10.jpg (19589 bytes)

djupa-9.jpg (17945 bytes)

 

djupa-11.jpg (23040 bytes) djupa-8.jpg (38497 bytes) djupa-1.jpg (30575 bytes)
  
djupa-4.jpg (24987 bytes) djupa-3.jpg (29590 bytes) djupa-5.jpg (15238 bytes)
 

- Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfu -

Höfundur: 

Leikgerð Sigurðar Atlasonar upp úr leikriti Vilborgar Traustadóttur, Eiðrofa.

Leikstjóri:

Sigurður Atlason

Persónur og leikarar:
 

Afi Tumi Sigurður Atlason
Guðjón / Gauji Arnar S. Jónsson
Hugga / Guðrún
Árdís B. Jónsdóttir
Nanna María Elfarsdóttir Sunneva Árnadóttir

Söngflokkur: 

Ásdís Jónsdóttir, Steinunn B. Halldórsdóttir, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, Sólrún Jónsdóttir, Ester Ingvarsdóttir, Harpa Hlín Haraldsdóttir, Aðalheiður Ólafsdóttir, Árdís B. Jónsdóttir.

Sviðsmynd:

Sigurður Atlason

Förðun og gerð leikskrár:

Sigurður Atlason

Ljós og hljóð:

Sigurður Marinó Þorvaldsson

Sýningar (24):

Djúpavík - 18.ágúst 1995
Djúpavík - 19. ágúst 1995
Hólmavík - 27. ágúst 1995
Hólmavík - 28. ágúst 1995
Hólmavík 29. ágúst 1995
Hólmavík - 7. október 1995
Sauðárkrókur - 21. október 1995
Sauðárkrókur - 22. október 1995
Dalvík - 23. október 1995
Freyvangur - 24. október 1995
Laugar - 25. október 1995
Húsavík - 26. október 1995
Borgarfjörður eystri - 28. október 1995
Egilsstaðir - 29. október 1995
Höfn í Hornafirði - 31. október 1995
Kirkjubæjarklaustur - 1. nóvember 1995
Selfoss - 2. nóvember 1995
Reykjavík - 4. nóvember 1995
Reykjavík - 5. nóvember 1995
Drangsnes - 18. nóvember 1995
Broddanes - 19. nóvember 1995
Laugarhóll - Sumar 1997
Hólmavík - 7. ágúst 1997
Hólmavík - 14. ágúst 1997

 

Spakmæli verksins: „Ég finn ei gatið á þér Gróa.“

 
Vefur
: SÖGUSMIÐJAN
© 2002