Hólmavíkurhreppur
Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík - Sími: 451 3510

 

Skrifstofa

Fundargerðir

Nefndir

Atvinnulíf
& saga

Þjónusta

Sæluhús á Steingrímsfjarðarheiði

- ljósmynd: Ásdís Jónsdóttir

Myndir

Tenglar

Aðalsíða

 

HREPPSNEFNDARFUNDUR NR.  1073.

                Ár 2006 þriðjudaginn 21. mars  var haldinn fundur í hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps.  Fundurinn var haldinn á skrifstofu hreppsins og hófst hann kl. 17:00.  Haraldur V. Jónsson oddviti setti fundinn og stjórnaði honum, en auk hans sátu fundinn Valdemar Guðmundsson, Hlíf Hrólfsdóttir varamaður, Eysteinn Gunnarsson og Kristín S. Einarsdóttir.  Ennfremur  sat fundinn Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri.  Fundarritari var Engilbert Ingvarsson.

Þetta var gert :

Oddviti bar upp tillögu um afbrigði við boðaða dagskrá tekið verði fyrir 6. mál, það er lóðamál.   Afbrigði var samþykkt samhljóða.

Oddviti kynnti þá eftirfarandi dagskrá í 6 töluliðum :

1.        Tilkynning frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga um 51. Fjórðungsþing Vestfirðinga.

2.        Drög að leigusamningi um 198 hektara hlut af landi Víðidalsár til fjölnytjaskógræktar.

3.        Beiðni um styrk frá Kómedíuleikhúsinu dags. 2. mars 2006.

4.        Fundargerð Félagsmálaráðs dags. 20. mars 2006.

5.        Fundargerð Byggingar-, umferðar og skipulagsnefndar Hólmavíkurhrepps dags. 20. mars 2006.

6.        Lóðamál.

Þá var gengið til dagkrár:

1.     Tilkynning frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga um 51. Fjórðungsþing Vestfirðinga.

Borist hefur tilkynning dags. 28. febr. 2006 um Fjórðungsþing Vestfirðinga, sem haldið verður í Súðavík 1. og 2. september 2006.  Lagt fram til kynningar.

2.        Drög að leigusamningi um 198 hektara hlut af landi Víðidalsár til fjölnytjaskógræktar.

Lögð fram drög að samningi um leigu á landi til skógræktar í landi Víðidalsár.  Eysteinn Gunnarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins, en gaf upplýsingar um landsssvæðið áður og svaraði spurningum nefndarmanna.  Samþykkt var samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga frá leigusamningi Hólmavíkurhrepps um land til skógræktar að Víðidalsá við Eystein Gunnarsson og Jensínu G. Pálsdóttur.

3.        Beiðni um styrk frá Kómedíuleikhúsinu dags. 2. mars 2006.

Borist hefur bréf frá Elfari Loga Hannessyni og Kómedíuleikhúsinu á Ísafirði, þar sem sótt er um styrk að upphæð kr. 200.000.-  Samþykkt var samhljóða með öllum atkvæðum að hafna erindinu.

4.        Fundargerð Félagsmálaráðs dags. 20. mars 2006.

Fundargerðin var bókuð í trúnaðarbók nefndarinnar.  Fundargerðin var samþykkt.

5.        Fundargerð Byggingar-, umferðar og skipulagsnefndar Hólmavíkurhrepps dags. 20. mars 2006. 

Lögð fram fundargerð B.U.S frá 20. mars.  Fundargerðin var samþykkt.

6.        Lóðamál.

Á síðasta fundi hreppsnefndar var frestað afgreiðslu á erindi til B.U.S, lóðarumsókn til byggingar einbýlishúss við Vitabraut. 

Lagt fram bréf frá byggingafulltrúa dags. 20. mars 2006, en hann hefur ásamt Haraldi oddvita og Einari verkstjóra skoðað tiltækar lóðir.  Í bréfinu er bent á þá kosti sem koma til greina við lóðaúthlutun.  Ennfremur var lagt fram bréf frá byggingafulltrúa dags. 20. mars s.l. varðandi skoðun á hugsanlegri lóð fyrir olíutanka.  Núverandi staðsetning á olíutönkum samræmist ekki gildandi reglum og hefur Olíudreifing því sótt um lóð undir nýja olíugeyma.  Byggingafulltrúi skoðaði þá staði sem koma til greina fyrir nýja olíugeyma og gerir grein fyrir kostum og göllum við hugsanlega lóð við höfnina á Skeiði. 

Samþykkt var samhljóða að vísa þessum lóðamálum með umsögn byggingafulltrúa til Byggingar,- umferðar og skipulagsnefndar.

 Fundargerð lesin upp og samþykkt.  Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:25

                Engilbert Ingvarsson                (sign)

                Haraldur V. Jónsson  (sign)

                Valdemar Guðmundsson            (sign)

                Hlíf Hrólfsdóttir                       (sign)

                Eysteinn Gunnarsson                (sign)

                Kristín S. Einarsdóttir              (sign)

                Ásdís Leifsdóttir                       (sign)

               

 

 

               

 

    
 

      

  
Sveitarstjóri:

Senda póst!
Ásdís Leifsdóttir

Sveitarstjórn:


Haraldur V.A. Jónsson


Elfa Björk Bragadóttir


Valdemar Guðmundsson


Eysteinn Gunnarsson


Kristín Einarsdóttir

Skrifstofa:

Senda póst!
Hólmavíkur-
hreppur
 

Einar Hansen hugar að netum - ljósmynd: Ásdís Jónsdóttir

HÓLMAVÍKURHREPPUR, HAFNARBRAUT 19, 510 HÓLMAVÍK
Sími: 451-3510 ¤ Fax: 451-3403 
© 2001 Vefsíðugerð: SÖGUSMIÐJAN   ¤  Umsjón: Hólmavíkurhreppur

Hólmavíkurkirkja - ljósmynd: Jón Jónsson