Hólmavíkurhreppur
Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík - Sími: 451 3510

 

Skrifstofa

Fundargerðir

Nefndir

Atvinnulíf
& saga

Þjónusta

Sæluhús á Steingrímsfjarðarheiði

- ljósmynd: Ásdís Jónsdóttir

Myndir

Tenglar

Aðalsíða

   

946. fundur - 29. ágúst 2000

Árið 2000 þriðjudaginn 29. ágúst var haldinn fundur í hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps. Eysteinn Gunnarsson oddviti setti fundinn og stjórnaði honum, en auk hans sátu fundinn Daði Guðjónsson, Elfa Björk Bragadóttir, Haraldur V.A. Jónsson og Þorsteinn Sigfússon, varamaður. Ritari var Engilbert Ingvarsson. Fundurinn var haldinn á skrifstofu hreppsins og hófst hann kl.17.00.

Þetta var gert:

Oddviti kynnti eftirfarandi dagskrá:

  1. Kauptilboð í jörðina Víðidalsá.

  2. Bréf frá Svavari Péturssyni.

  3. Ráðning skrifstofumanns á skrifstofu Hólmavíkurhrepps.

  4. Tilboð í sundkeyrslu, haustið 2000.

  5. Fundur í húsnæðisnefnd 17. ágúst sl.

  6. Samningur um sérfræðiþjónustu við skóla.

  7. Boðun 45. Fjórðungsþings Vestfjarða.

  8. Fundargerð Framtíðarnefndar frá 27. apríl 2000.

  9. Erindi varðandi Tekjustofnanefnd sveitarfélaga.

  10. Bréf frá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vestfjörðum.

Þá var gengið til dagskrár:

  1. Kauptilboð í jörðina Víðidalsá. Borist hefur bréf dags. 23. ágúst 2000 ásamt kauptilboði dags. 17. ágúst í jörðina Víðidalsá frá Fasteignasölunni Hús og hýbýli e.h.f. Samþykkt var að hafna tilboðinu.

  2. Bréf frá Svavari Péturssyni. Borist hefur bréf frá Svavari Péturssyni dags. 16. ágúst 2000 ásamt kauptilboði frá Svavari Kára Svavarssyni í hluta fjárhúss á Víðidalsá. Hólmavíkurhreppi er boðið að nýta forkaupsrétt. Samþykkt var að hafna forkaupsrétti.

  3. Ráðning starfsmanns á skrifstofu Hólmavíkurhrepps. Borist hefur ein umsókn um starf á skrifstofu Hólmavíkurhrepps frá Láru Jónsdóttur. Samþykkt var að ráða hana samkvæmt gildandi kjarasamningum.

  4. Tilboð í sundkeyrslu, haustið 2000. Borist hafa 2 tilboð í akstur á skólabörnum í sundkennslu haustið 2000. Tilboðin eru frá Tryggva Ólafssyni Drangsnesi og Gunnari S. Jónssyni Hólmavík. Haraldur lagði til að tilboði Tryggva yrði tekið og samþykkt var með fjórum samhljóða atkvæðum að ráða Gunnar S. Jónsson við aksturinn samkvæmt fyrirliggjandi tilboði.

  5. Fundur húsnæðisnefndar 17. ágúst 2000. Lögð fram fundargerð frá 17. ágúst í húsnæðisnefnd. Fundargerðin var samþykkt.

  6. Samningur um sérfræðiþjónustu við skóla. Lagt fram afrit af bréfi dags. 15. ágúst 2000 til sveitarstjórna í Strandasýslu undirritað af sveitarstjóra Þóri Erni Jónssyni er varðar samning um sérfræðiþjónustu við skóla í Strandasýslu 2000-2001, ásamt áætlun um sérfræðiþjónustu við skóla og leikskóla í Strandasýslu. Hreppsnefnd mælir með áætluninni, en leggur til að miðað verði við fjórar ferðir og 149 tíma.

  7. Boðun 45. Fjórðungsþings Vestfjarða. Borist hefur bréf dags. 9. ágúst 2000 frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga um boðun 45. Fjórðungsþings dagana 22.-24. september 2000.

  8. Fundargerð Framtíðarnefndar frá 27. apríl 2000. Borist hefur bréf frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga dags. 22. ágúst 2000, ásamt fundargerð Framtíðarnefndar, Tekjustofnanefndar og dagskrá símenntunar vikuna 4. til 10. sept. 2000 á Vestfjörðum.

  9. Erindi varðandi Tekjustofnanefnd sveitarfélaganna. Borist hefur bréf dags. 11. október 1999 frá Ísafjarðarbæ til Félagsmálaráðuneytis og bæjarstjóranum í Bolungarvík frá mars s.l. varðandi breytingu á tekjustofnum sveitarfélaga.

  10. Bréf frá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vestfjörðum. Borist hefur bréf dags. 14. ágúst 2000 frá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra er varðar uppbyggingu á þjónustu fatlaðra í Strandasýslu. Hreppsnefnd lýsir yfir stuðningi við uppbyggingu á þjónustu við fatlaða í Strandasýslu og felur sveitarstjóra að koma þeim sjónarmiðum á framfæri við viðkomandi aðila.

Fundargerð lesin upp og samþykkt. Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:25.

Engilbert Ingvarsson. (sign) Haraldur V.A. Jónsson. (sign) Daði Guðjónsson. (sign) Þorsteinn Sigfússon. (sign) Elfa Björk Bragadóttir. (sign)

 

 
Sveitarstjóri:

Senda póst!
Þór Örn Jónsson

Sveitarstjórn:


Birna Richardsdóttir


Daði Guðjónsson


Elfa Björk Bragadóttir


Eysteinn Gunnarsson


Haraldur V.A. Jónsson

Skrifstofa:

Senda póst!
Hólmavíkur-
hreppur
 

Einar Hansen hugar að netum - ljósmynd: Ásdís Jónsdóttir

HÓLMAVÍKURHREPPUR, HAFNARBRAUT 19, 510 HÓLMAVÍK
Sími: 451-3510 ¤ Fax: 451-3403
© 2001 Vefsíðugerð: SÖGUSMIÐJAN   ¤  Umsjón: Hólmavíkurhreppur

Hólmavíkurkirkja - ljósmynd: Jón Jónsson