Leikfélag Hólmavíkur

Búningahorn

Sminkhorn

Ljósahorn

Hvíslarahorn


Aðalsíðan

Leikritasíðan

 
Glímuskjálfti ¤
1992 

Glímuskjálfti er farsi þar sem lífleiki og fjör er í fyrirrúmi, atburðarásin er hröð og áður en nokkur veit af er allt komið í næstum óleysanlegan hnút. Að sjálfsögðu rætist þó úr að lokum eins og í öllum góðum försum.

Leikritið Glímuskjálfti var stytt og endurbætt af leikstjóra verksins, Herði Torfasyni, fyrir uppsetninguna. Það hefur áður verið sýnt undir nöfnunum Glímukappinn og Orrustan á Hálogalandi. Þessi farsi var mikið sýndur á árunum eftir stríð, en hafði lítið verið leikinn síðustu 15 árin áður en Leikfélag Hólmavíkur setti verkið upp. Mætingin heima fyrir var góð og leikstjórinn fær bestu meðmæli sem völ er á hjá Leikfélaginu. 

Vel gekk að manna stykkið, fyrir utan að leikarinn sem glímdi við hlutverk glímukappans mikla gaf leiklistina upp á bátinn á miðju æfingatímabili. Jón Gísli Jónsson hljóp í skarðið eins og fyrr og síðar. Hann lenti svo reyndar í óhappi u.þ.b. viku fyrir sýningu þegar að hann stakk sér niður fossinn Sleðamannaskelfi á Steinadalsheiði á vélsleða. Það blæddi inn á vöðva í lærinu, þannig að glímukóngurinn þurfti að styðjast við hækjur. Þær notaði hann reyndar ekki inni á sviðinu.

Leikferðin með Glímuskjálfta var ekkert smáræði. Stefnan var tekin á vinabæ Hólmavíkur, Raufarhöfn og sýnt víða á leiðinni. Auk þess brugðu menn sér út á Snæfellsnes. Aðsóknin var víðast hvar ásættanleg, þó var hún afleit á Húsavík og fremur dræm á Kópaskeri. Fjölmenni mætti á sýninguna á Raufarhöfn.

 

glimu9.jpg (24671 bytes)

glimu10.jpg (20518 bytes)

glimu4.jpg (24750 bytes)

glimu11.jpg (22874 bytes)

glimu3.jpg (28831 bytes)

glimu12.jpg (23186 bytes)

glimu13.jpg (26157 bytes)

glimu2.jpg (28600 bytes)

glimu6.jpg (27493 bytes)

glimu5.jpg (27105 bytes)

glimu8.jpg (25994 bytes)

- Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfu -

Höfundur: 

Schwarts og fleiri.

Leikstjóri:

Hörður Torfason.

Aðstoðarleikstjóri:

Björk Jóhannsdóttir.

Persónur og leikarar:
 

Hermann Hermanns

Sigurður Atlason

Hekla, kona Hermanns

Svanhildur Jónsdóttir

Hermann, sonur Hermanns

Arnar Jónsson

Þóra, dóttir Hermanns

Ingibjörg Sigurðardóttir

Vilmundur Sveinsson

Vignir Pálsson

Anne Lise Hansen

Ester Sigfúsdóttir

Agnes Torfason

Jensína Pálsdóttir

Zakarías, maður Agnesar

Jón Jónsson

Hermann Hermanns, glímukappi

Jón Gísli Jónsson

Hvíslari:

Hildur Björnsdóttir.

Ljós:

Jóhann L. Jónsson og Sigurður M. Þorvaldsson.

Sviðsmynd:

Ásmundur Vermundsson, Sigurður Atlason og Helga B. Sigurðardóttir.

Förðun:

María Guðbrandsdóttir, Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir og Salbjörg Engilbertsdóttir.

Búningar:

Helga Gunnarsdóttir.

Leikmunir:

Jóhanna S. Jónsdóttir

Sviðsmenn:

Eysteinn Gunnarsson, Jóhanna Signý Jónsdóttir, Helga Björk Sigurðardóttir, Árdís Björk Jónsdóttir og Jóhanna K. Svavarsdóttir.

Matráðskona í leikferð:

Ásdís Jónsdóttir.

Leikskrá:

Jón Jónsson, Ester Sigfúsdóttir og María Guðbrandsdóttir.

Sýningar (14):

Hólmavík - 11. apríl 
Hólmavík - 15. apríl 
Hólmavík - 18. apríl
Hólmavík - 18. apríl
Sævangur - 27. apríl 
Drangsnes - 28. apríl 
Króksfjarðarnes - 1. maí
Lýsuhóll - 2. maí
Laugarbakka - 27. maí
Miðgarður, Varmahlíð - 28. maí
Kópasker - 29. maí
Raufarhöfn - 30. maí
Húsavík - 31. maí
Trékyllisvík - 6. júní

    

Spakmæli verksins: „Ert þetta þú? En þú ert dauður.“

 
Vefur
: SÖGUSMIÐJAN
© 2002