Leikfélag Hólmavíkur

Búningahorn

Sminkhorn

Ljósahorn

Hvíslarahorn

 
Leikfélagið

Nýjustu fréttir

Leiksýningar

Ferðalög

Glens og grín

Leikarar o.fl.

Upphafssíðan
 

Gestabók
Skrá á póstlista

 
Fræknar ferðasögur - I

Með Tobacco Road í Kópavog

Í allar leikferðirnar með Tobacco Road var farið með rútum. Sérstaklega er minnisstæð rúta sem var leigð hjá Allrahanda þegar farið var með sýninguna í Kópavog. Árgerð hennar var öllum ókunn, en gömul var hún. 

Með Tobacco Road í Ásbyrgi á allt annarri rútu

Það var lagt af stað frá Hólmavík um hádegisbil og loks komið í Borgarnes þegar verulega var farið að halla degi. Þá dó rútan sínum ellidauða og neitaði að fara lengra, sama hvað reynt var að ýta með öllum tiltækum höndum. Í gang fór hún ekki. Nafnið Allrahanda á fyrirtækinu dugði ekki til.

Á ferð um Norðurland

Þá var tekið á það ráð að fá sent annað farartæki í hvelli frá Allrahanda og seint um nóttina kom strætisvagn sem flutti leikhópinn í brjáluðu roki suður. Til Reykjavíkur var komið klukkan sjö um morguninn, svo það var lítill svefn fyrir sýninguna kvöldið eftir.

[Af vefsíðu Sigurðar Atlasonar]

   

Spakmælið: „Þrjú hjól undir bílnum, áfram skröltir hann þó ...“

 
Vefur
: SÖGUSMIÐJAN
© 2002